Reykjavík íbúð

 
 

Mjög vel búin íbúð með sérinngangi og sér palli. Íbúðin er í göngufæri við flesta helstu staði í Reykjavík, s. s. Kringluna, Perluna og Öskjuhlíð, Miðbæinn, Sundhöllina, Laugardalinn og Fossvoginn. Bakarí, verslanir, veitingahús, bíó og leikhús eru í næsta nágrenni.


Svefnpláss er fyrir fjóra, svefnherbergi með hjónarúmi og svefnsófi í stofu.


Í íbúðinni er fullbúið eldhús með ísskáp, eldavél og uppþvottavél.


Í rúmgóðri stofu er borðstofuborð og stólar, sófi, sófaborð, hillur, sjónvarp, DVD tæki, Bose hljómflutningstæki fyrir i-pod og hraðvirk internettenging. Nett vinnuaðstaða er til hliðar við stofuna.


Út frá stofu er viðarpallur með útihúsgögnun og lýsingu. Sér bílastæði er við íbúðina.

 

Velkomin í glæsilega íbúð á besta stað í Reykjavík

Leiguverð:

Einn dagur 15.000 kr.

13.500 kr. á dag fyrir 2–6 daga

Vikuleiga: 72.000 kr.

Fyrir lengri tíma, sendið fyrirspurn.